frá 36 umsögnum
14 nætur
Almenn ferð
169 manns
Enska, Íslenska, Spænska
Tveir hágæða 18 holu vellir, Alcaidesa Links og Alcaidesa Heathland. Alcaidesa Links golfvöllurinn er ein af golfperlunum á Costa del Sol. Völlurinn var hannaður af Peter Ellis árið 1992 og hefur fengið margar viðurkenningar sem einn af bestu links-völlum á meginlandi Evrópu. Völlurinn liggur að hluta til meðfram 2 km langri Miðjarðarhafsströndinni með stórkostlegu útsýni yfir hafið og Gíbraltarklettinn.
Alcaidesa Heathland golfvöllurinn er meira hæðóttur innanlandsvöllur með breiðum brautum, vötnum og einstöku landslagi. Margir telja að hann sé síst síðri en links-völlurinn.
Hótelið, sem samanstendur af 19 húsum, hverju með 16 herbergjum, er staðsett við Miðjarðarhafið með stórkostlegu útsýni yfir á Gíbraltarklettinn. Aldiana er þýsk hótelkeðja sem gerir mjög miklar kröfur um að matur og allur aðbúnaður sé eins og best verður á kosið. Á svæðinu eru m.a. 10 tennisvellir, líkamsræktarstöð, innisundlaug, gufubað, 2 útisundlaugar, leikhús, næturklúbbur o.fl. Dagskrá er fyrir börn og unglinga allan daginn en á kvöldin eru skemmtisýningar í leikhúsinu og annað hvort lifandi tónlist eða diskótek við barinn á kvöldin en allir drykkir eru innifaldir. Á fimmtudagskvöldum er „gala-kvöld“ á hótelinu eða „black and white kvöld“ og er þá óskað eftir að sem flestir mæti í einhverju svörtu og hvítu – en, það er þó alls engin skylda. Örstutt er síðan niður á mjög góða strönd þar sem hægt er að synda eða ganga klukkustundum saman í flæðarmálinu en sjórinn þarna er einstaklega tær.
Golfvellirnir og klúbbhúsið eru á hæð fyrir ofan hótelið og því sér hótelið og golfvöllurinn um að skutla kylfingum hnökralaust á tveimur 8 manna skutlum upp í klúbbhús og til baka reglulega, eða á u.þ.b. 10-15 mínútna fresti. Kylfingar geta á morgnana smurt sér brauð og tekið með sér ávexti og vatn út á golfvöll. Sérstakur „golfers lunch“ er líka á hótelinu kl. 14-17 á daginn. Á hótelinu öllu er mjög gott þráðlaust netsamband.
Minna
dxqoysdf
http://www.gq3a4ctad8ppl977666uu44gx5o80c67s.org/